________________________________________________________________________________________
Bach blómadropar hafa reynst börnum sérlega vel því börn hafa yfirleitt ekki lært að bæla niður tilfinningar sínar.
Ung börn tjá líðan sína í gegnum leik en ekki með orðum. Þetta vill oft gleymast og nálgun inn á tilfinningar barna getur verið afar vandmeð farin. Mörg börn stríða við tilfinningar sem þau eiga erfitt með að tjá eða koma í orð en brjótast út á margvíslegan hátt. Sem dæmi má nefna; ýmiskonar hegðunarvandamál, átröskun, magaverkur eða líkamleg einkenni af óúskýranlegum toga. Börn eru yfirleitt næm og finna strax fyrir virkni dropanna.
Fyrsta meðferð barns byrjar á spurningalista sem foreldri svarar og skilar inn. Eftir það mætir barnið í viðtal með foreldri í fyrsta tímann og þá fyrst er hægt að byrja að velja réttu remedíurnar. Áframhaldandi vinna byggist svo oft á spjalli, heilun eða huglægum ævintýraferðum ásamt mánaðarskömmtum af remedíum.
Bach droparnir eru vel þekktir í Þýskalandi og Bretlandi. Fleiri læknar hafa tileinkað sér Bach fræðin og nota dropana í bland við almennar lækningar. Sem dæmi má nefna norska lækninn Audun Myskja. Hann hefur meðal annars skrifað bók um hvernig Bach blómadropar geta nýst í vestrænum lækningum. Bach blómadroparnir koma jafnvægi á tilfinningalega líðan en geta einnig upprætt líkamlega kvilla sem eiga rætur sínar í tilfinningunum eða barnæsku. Lesa meira
Hér getur þú pantað Bach blómadropablöndurnar sem hafa selgið í gegn síðastliðna áratugi. Hafðu samband og við sendum þér blöndu eða komdu við og kíktu á úrvalið. Skoðaðu nánar undir dálknum Vörur hér til hliðar. Lesa meira
Forsíðumynd Viskunnar er tekin af Hallgrími Guðmundssyni áhugaljósmyndara. Viskan þakkar Hallgrími kærlega fyrir þessa fallegu mynd sem er bæði litrík, djúp og dulræn eins og leiðin inn á við -að okkar innsta kjarna.